Prófasafn Háskóla Íslands
Prófasafn hvers námskeiðs fyrir sig er að finna á viðkomandi vefsvæði á UGLU. Það eina sem sem stúdentar þurfa að gera er að skrá sig inn í UGLU, velja viðkomandi námskeið og flipann „prófasafn“ og er þar prófin að finna á .pdf formi.
Upphaflega sá Stúdentaráð um uppsetningu prófasafns en nú sér kennslusvið Háskólans um framkvæmdina að öllu leyti, skannar inn prófin og heldur utan um prófasafnið.
Ef próf er ekki í prófasafninu á UGLU (heldu bara svokallaðar prófsvuntur) er það vegna þess að viðkomandi kennari hefur kosið að skila ekki prófi til kennslusviðs.
Kennurum er heimilt í stað þess að skila prófi til kennslusviðs að veita aðgang að því á skrifstofu sinni.
Þá eiga að vera upplýsingar, á prófsvuntum, um hvaða kennari lagði prófið fyrir og ætti því að vera auðsótt að hafa sambandi við viðkomandi og fá að skoða prófið.
Réttur stúdenta til að sjá gömul próf er skýr, skv. 4.tl. 6.gr. sbr. 1.mgr. 8.gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 og úrskurð Úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. A-73/1999 (http://ursk.forsaetisraduneyti.is/urskurdir/nr/593). Eina undanþágan er ef fyrirhugað er að leggja nákvæmlega sama prófið fyrir aftur.
|