Heilræði varðandi próflestur og próftöku
Þú, lesandi góður, veist áreiðanlega manna best hvað góður prófundirbúningur
felur í sér og í hverju skynsamleg skipulagning er fólkin en...
- Skipulegðu lesturinn fram að prófdegi og fylgdu áætluninni eftir föngum.
- Erfitt er að tileinka sér nýtt efni síðustu klukkutímana fyrir próf eða rétt fyrir nætursvefn; nýttu þá tímann frekar til upprifjunar.
- Hafðu reglu á svefn- og matarvenjum. Hvíld á milli lestrarlota er mikilvæg svo sem með hreyfingu og slökun.
- Góður nætursvefn fyrir próf getur skipt sköpum.
- Prófaðu sjálfa/n þig. Búðu til þín eigin próf. Reyndu að líkja eftir raunverulegum aðstæðum, bæði hvað varðar próftíma og próflengd.
- Mættu tímanlega í prófið. Gefðu þér tíma til að koma þér fyrir og undirbúa þig andlega.
- Talaðu EKKI við aðra nemendur, hvorki fyrir né eftir próf. Þú veist hvað þú veist. Þú gerðir þitt besta og láttu þar við sitja.
- Hlustaðu vel á öll munnleg fyrirmæli og lestu vel skrifleg fyrirmæli.
- Lestu allt prófið yfir áður en þú byrjar. Vertu viss um að þú vitir vægi hverrar spurningar svo að þú getir skipulagt tímann. Eyddu ekki meiri tíma í spurningu en vægi hennar er.
- Spurðu kennarann ef þú ert ekki viss. Eyddu ekki tíma í að reyna að átta þig á óljósum fyrirmælum. Óskaðu strax eftir hjálp.
- Einbeittu þér að aðstæðunum hér og nú, þ.e.a.s. prófinu. Hugsaðu ekki um hvað þú hefðir átt að gera, gætir hafa gert eða myndir hafa gert. Taktu bara prófið.
- Skráðu minnisatriði á rissblað, svo sem formúlur, lykilhugtök og annað sem er þér ofarlega ú huga þegar þú sest í prófstofu.
- Svaraðu léttustu spurningunum fyrst. Breyttu ekki svari eftir á nema þú sért viss í þinni sök.
- Ef þú ert í vafa reyndu þá við næstu spurningu. Komdu síðar að þeirri erfiðari.
- Vertu stuttorð/ur og gagnorð/ur.
|